1981 - Ísafjörður
10.11.2006 00:42:52 / Sunna

OF Langt síðan síðast!!!!!

KOMINN TÍMI TIL AÐ BLOGGA

Áfram með afmælisbörnin

 

Rakel 1.apríl

Jón Kristinn 10.apríl

Þórður 12.apríl

Óskar 17.apríl

Elísa 22.apríl

Hörður Sævar 23.apríl

Arna Vigdís 27.apríl

Sunneva 28.apríl

 

Kolla 4.maí

Svanhvít 12.maí

Halldór 15.maí

Gunnar Pétur 16.maí

Trausti 17.maí

Birna 17.maí

Ingibjörg Ósk 27.maí

 

Ása Rut 8.júní

Viðar 27.júní

Guðjón Páll 28.júní

 

Tinna 17.júlí

 

Pétur Þór 6.ágúst

Drífa 17.ágúst

Helena 18.ágúst

Hörður Páll 18.ágúst

Helga Rún 19.ágúst

Sigríður 24.ágúst

 

Birgir Örn 1.september

Hjörtur 2.september

Salóme 10.september

Þorkell 12.september

Kristinn Ísak 16.september

Davíð Rúnar 23.september

Hrannar 30.september

 

Skúli 6.október

Amelía 7.október

Anna Soffía 19.október

Axel 20.október

Guðni 22.október

Svavar 22.október

Ingibjörg Erna 24.október

 

Guðjón Smári 4.nóvember

Stefán Þór 18.nóvember

 

Þetta kostaði svita og tár... það er eins gott að þið séuð ánægð Annars verð ég alveg brjáluð. Annars er ég farin að hlakka til næsta "reunions"... Þið vitið að það er á næsta ári. Ég var að spá í að bjóða mig fram í að plana.... hver er til í að vera með. Það er ágætt að hafa það svona á hreinu fyrir áramót svo hægt sé að fara að plana fljótlega eftir það J jæja elskurnar mínar og hitt pakkið, ég bið bara að heilsa ykkur í bili. Ég vona að það fari nú að koma aðeins meiri hreyfing á þessa síðu hjá okkur . Kærar kveðjur ykkar eina sanna og skemmtilegasta Sunneva Sigurðardóttir  p.s. ég vona að þetta sé allt rétt hjá mér..... ég fann alla í gegn um Íslendingabók....... Annars látið þið mig bara vita og ég breyti þvíJ  

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 16:56:24 / linda

tjúttí-femm

Alltaf bætast fleiri og fleiri í 25 ára hópinn.

Óli varð 25 ára þann 24. febrúar.

En þeir sem éga afmæli í mars eru:

Hilmar Örn... hann á afmæli í dag, 8. mars

Arna Rut á föstudaginn 10.

Sveinbjörg á sunnudaginn 12.

Ég, Linda Björk á mánudaginn 13.

og að lokum Elsa Margrét sem á afmæli 28. mars...

Ég óska öllum til hamingju með afmælin sín!! :-) Og vona að það séu allir við góða heilsu þrátt fyrir öll árin ;-)

Bestu kveðjur til allra

LBP


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 09:52:45 / Kolla

Afmælisbörn

Jæja
Björn
Berglind
Pálína
Haukur
Og Halla
Innilega til hamingju með 25 árin og meiga þau vera mun fleiri.
P.s hver á ég að mæta í afmælið.
Kv Kolla

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 13:55:28 / Kolla

Foreldrar hittast

Jæja kids hvað segir þið um að fara hittast með börnin?

Fara í sund og gera e-ð álíka skemmtilegt...

En ef þig langar að koma og átt ekki barn skal ég (Kolla) með glöðu geði vera mamma þín.....

Jæjæ komið með tilögu að dagsetningu og drífum í þessu...


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 02:16:33 / Sunna

Ennþá nýrra!!!

Ég er búin að vera í hópi margra okkar í árgangnum okkar í kvöld. Halla María býður sig góðfúslega fram í næstu nefnd, Skúli Þórðar (sem ekki mætti síðast) ætlar að vera henni innan handar með hugmyndir. Ég veit að fólk er orðið rosalega spennt fyrir næstu samkomu enda var mjög gaman síðast þrátt fyrir mikla drykkju!!! hheheheh.... Nei djók. En svona í alvöru... Þá er ekkert vitlaust að fara að plana. Eftir eitt og hálft ár þá verðum við vonandi efnaðri til að gera eitthvað brjálað... og vonandi enginn bundinn við eitt né neitt.... Við reynum bara að finna einhvern tíma sem hentar öllum og það verður sent bréf til allra með dagsetningar (með fyrirvara) sem fólk velur hvaða dagsetning hentar hverjum og einum. Meiri hluturinn ræður... svona verður það bara að vera. En hér er bara ein hugmynd af mörgum. Með kærri kveðju Sunneva og Halla María.

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 16:39:34 / Kolla

Nnýtt

Hmmm börn.Ef ég gleymdi einhverjum endilega látið mig vita.

Veit t.d ekki vort barn Berglindar sé með síðu og fleiri.

Kv Kolbrún


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.11.2005 11:28:25 / linda

Jájá... allt að gerast bara!!

hmm... það er nú langt síðan einhver hefur skrifað hingað inn!!

Hvað er búið að vera að gerast?

** Elsa og Diddi eignuðust strák 4. október... auðvitað er pilturinn kominn með síðu :-)  http://www.barnaland.is/barn/37038/

** Hörður Páll átti stelpu 1. október

** Trausti Már varð stelpu-pabbi 2. nóvember, hún ber nafið Anja Karen :-) hún er líka með síðu á netinu:  http://barnaland.is/barn/31218

** Snorri Salvars (sem var með okkur í MÍ), og Dagný Sverris ('83) áttu stelpu í sumar, 28. ágúst. Ekki nóg með það heldur giftu þau sig líka, komu öllum á óvart í skírninni. Stelpan heitir Amalía Rún er að sjálfsögðu með síðu á barnalandi: http://barnaland.is/barn/36729

Svo er líka fullt af fólki búið að eiga afmæli.

hafiði einhverju við að bæta??

kommentið eitthvað ...

kveðjur, Linda P


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.07.2005 18:37:42 / linda

Enn bætast við myndir

Skoðið myndirnar hennar Elísu....

http://www.simnet.is/pjanuz/elisa/myndir/reunion81/

ekki gleyma að kommenta eða skrifa í gestabókina :)


» 22 hafa sagt sína skoðun

23.06.2005 11:48:58 / linda

Það er bara ekkert að gerast! :-D

jæja, hvað segiði, krakkar?

það er bara kominn 23. júní... og sólin farin að lækka á lofti....

eru ekki allir í sumarfíling?


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.06.2005 17:44:00 / linda

******** MYNDIR MYNDIR MYNDIR *******

Jæja elskurnar!

Ég setti myndirnar hans Bigga bloggara inná svæðið okkar á fotki.com.

Ákvað að hafa það frekar þannig en að setja inná bloggari.is :-)

Endilega skellið ykkur á þessa slóð og kíkið á myndirnar.

Ég setti allar myndirnar inn.... nema eina!

Njótið vel ;-)

www.fotki.com/arg81


» 25 hafa sagt sína skoðun

04.06.2005 13:36:22 / linda

Gleymdist eitt!!

Í dag, 4. júní eru akkúrat 10 ár síðan þessir fermdust:

Arna Rut, Arna Vigdís, Árni Freyr, Biggi, Davíð, Erna, Friðlaugur, Gestur, Guðjón Smári, Guðni, Haukur, Helga Rún, Hörður Sævar, Jón Kristinn, Linda, Óli, Pálína, Pétur, Sella, Sigga, Sindri, Skúli, Stefán, Trausti, Þorkell....

Ég mundi það bara í dag að ég var með video-spólu sem égætlaði að sýna um síðustu helgi... Ég á ferminguna okkar á bandi... Það er sjúklega fyndið að skoða það!!!  Sérstaklega þegar við vorum að synjga með prestinum. Muniði hvað Haukur talaði geðveikt hátt hjá prestinum? ... en hann er samt sá eini sem heyrist eitthvað í!!

Til hamingju með daginn krakkar ;-)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.06.2005 18:50:21 / linda

Ferðasagan....

Jæja, kæru vinir.... skemmtuð þið ykkur ekki vel á reunioninu okkar? Mér fannst þetta heppnast svaka vel og er ánægð hvað hópurinn hélst saman. Hlakka geðveikt til að skoða sem flestar myndir.... því mínar eru hálf ónýtar. Kann greinilega ekki á þessa myndavél.

Fyrir þá sem ekki mættu verð ég eiginlega að segja smá ferðasögu.

Við hittumst á föstudagskvöldinu kl 19 á Silfurtorgi. Þar fengu allir barmmerki með áletruninni 1981-Ísafjörður . Við fórum í ratleik í nágrenni skólans. Á einni stoppistöðinni voru miðar þar sem átti að skrifa einhverjar minningar úr skólanum og munu þær verða settar á vefinn fljótlega. Á næstu stöð átti fólk að útnefna mestu pæjuna, töffarann, gelgjuna, rokkarann og sprellikallinn. Á síðustu stöðinni voru skrifaðar hljómsveitir eða lög frá grunnskólaárunum. Allt voðalega skemmtilegt að rifja upp.

Við hittumst í blómagarðinum við Austurvöll eftir ratleikinn og fórum í kíló-kastó. Þar voru mörg flott tilþrif. Við vorum ekki beint að telja stigin en ég held að mitt lið hafi unnið ;-)  

Eftir kílóið var farið á Langa Manga og sötraðir nokkrir bjórar við gítar-undirspil. Biggi og Hrannar tóku líka nokkur lög… Sunna söng eitthvað, ég söng eitthvað, rosa stuð.

Við fjölmenntum á Sjallann kl 22 á drekktu betur. Fólki gekk misvel að svara sökum drykkju og almenns minnisleysis! :-)

Eftir 30 spurningar fóru einhverjir á Langa Manga og aðrir urðu eftir í Sjallanum. Þá var bara djammað frameftir kvöldi og sumir til morguns. :-S Það voru margar myndir teknar þetta kvöld og er best að skoða þær bara til að sjá hvað var í gangi….

Á laugardeginum var mæting á Grunnskólalóðina klukkan 12 á hádegi. Þar hittum við Ásu Gríms og Sigrúnu Guðmunds. Þær löbbuðu með okkur í gegnum skólann. Við forum í allar álmur og líka inní féló. Ekkert smá gaman að skoða gamla skólann… grifjuna…  skólaspjalðið… litla herbergið þar sem maður sótti skólamjólkina… ohh… :-)

Við færðum kennurunum blóm í þakklætisskyni fyrir túrinn.

Því næst var haldið í rútu. Gauji Flosa kom áflottustu rútu bæjarins! Það þýðir ekkert minna fyrir flottasta fólkið. Við rúntuðum aðeins um bæinn og Biggi tók upp gítarinn og söngbækur sem hann hafði útbúið. Rútustemmningin var í algleymingi. Sunna sagði nokkra brandara, Svavar líka. Eftir smá rúnt um bæinn, með stoppum hér og þar.... var haldið inní Tunguskóg. Þar hélt ljúfa gítar-partý stemmningin áfram og við rifjuðum upp fullt af lögum síðan í grunnskóla.  Rútan kom í bæinn um kl 16 og þá var frjáls tími. Stór hópur fólks settist fyrir utan Langa Manga og hélt áfram að partýast.  Rosa stuð!

Það var mæting í Guðmundarbúð klukkan 20. Þá var kjötinu skellt á grillið. Gunnar Pétur yfirgrillari hafði góða yfirumsjón með meðhjálpurunum. Maturinn heppnaðist afbragðs vel og vonandi voru allir saddir.  Svo tók við bara svaka djamm og gleði! Úrslit kosninganna voru gerð ljós:

Mesti töffarinn: Biggi

Mesta pæjan: Tinna

Mesta gelgjan: Arna Rut

Mesti rokkarinn: Haukur

Mesti sprellikallinn: Þorkell

Mesta breytingin: Jón Kristinn

Ég var með smá leik fyrir 6 sjálfboðaliða. Það var svakalega fyndið og má sjá það hér:

http://gallery.serbinn.net/albums/Isafjordur-Reunion-hja-1981-argangi-2005/MOV02033.mpg

Eftir smá sprell og gaman tók Þorkell tók sitt fræga lag; Hlutir! við undirleik Bigga. Því næst var partíinu haldið áfram. Það var sungið og spilað og drukkið og dansað þar til síðasti maður datt í gólfið.. heheh, segi nú svona! En hópurinn tvístraðist þegar klukkan fór að ganga 2. Sumir fóru á ball, aðrir fóru bara heim og restin á Langa.

Við vorum nokkur sem hittumst á Sunnudeginum. Það var eiginlega bara fyrir tilviljun, en ég, Birna, Sunna,Trausti og Svavar fórum inní skóg ásamt utangarðsfólkinu Hákoni Blöndal og Elínu Mörtu. Við spiluðum smá fótbolta og við Svavar og Trausti dukkum bjór! ;-) Því næst fórum við 7 heim til Sunnu og Hákons og elduðum hamborgara! :-p

En helgin var í einu orði sagt FRÁBÆR!! Og ég er strax farin að hlakka til næsta re-unions…..

Takk kærlega fyrir allt saman, kæru félagar! Luv'ya all

Linda P.

ps. add-ið mér á msn: lbp@simnet.is


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.06.2005 11:33:06 / linda

Ég fæ myndirnar á diski í hádeginu...

... hver vill vera vinur minn? ;-)

úúú... spennandi að skoða þær. En ég er alveg á því að láta bigga setja þær á síðuna.... lang-þægilegast!

Er einhver sem er ALGJÖRLEGA á móti því?? Látið í ykkur heyra!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.06.2005 10:55:45 / linda

ath!

Athugið nýja skoðanakönnun.

Er ekki upplagt að Biggi setji myndirnar sínar á vefinn sinn www.bloggari.is

þá er auðvelt fyrir alla að nálgast þær ;-)

endilega látið skoðun ykkar í ljós....


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.06.2005 10:09:55 / linda

myndir myndir

hér er fyrsti myndaskammturinn. Þessar eru frá Svavari og nokkrar frá Sunnu.

Njótið vel ,-)

http://gallery.serbinn.net/Isafjordur-Reunion-hja-1981-argangi-2005


» 19 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4